Handbækur, fræðibækur og ævisögur
Listarnir eru gerðir út frá sölu dagana 3. - 9. mars 2010 í verslunum Eymundsson.
Aðallisti íslenskra bóka Skáldverk - kiljur
- Handbækur, fræðibækur og ævisögur
-
1. Veröld sem var - kilja
Stefan Zweig
Veröld sem var er einhver áhrifamesta sjálfsævisaga rithöfundar sem út hefur komið. Höfundurinn fléttar lífshlaup sitt saman við umrótatíma í Evrópu á síðustu öld svo úr verður einstakur aldarspegill sem felur í sér mikilvæg varnaðarorð til komandi kynslóða...
Veröld sem var - kilja2. Konur eiga orðið 2010
Dagatalsbókinni Konur eiga orðið 2010 er ritstýrt af Kristínu Birgisdóttur og Myrra Leifsdóttir hannaði og myndskreytti. Auk þess að vera aðgengileg skipulagsbók í hvunndagserlinum er her að finna í byrjun hverrar viku og mánaðar, alls 64 hugrenningar kvenna á öllum aldri og úr öllum þjóðfélagsstéttum...
Konur eiga orðið 20103. ÞÞ í fátækralandi - kilja
Pétur Gunnarsson
Ævisaga Þórbergs Þórðarsonar, skráð af rithöfundinum Pétri Gunnarssyni, hefur vakið verðskuldaða athygli. Fyrra bindi sögunnar, ÞÞ – Í fátæktarlandi, kom út árið 2007 og hlaut þá tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna...
ÞÞ í fátækralandi - kilja4. ÞÞ í forheimskunarlandi - kilja
Pétur Gunnarsson
Með ÞÞ í forheimskunarlandi lýkur Pétur Gunnarsson verki sínu um Þórberg Þórðarson en fyrra bindið, ÞÞ – í fátæktarlandi sem kom út árið 2007, hlaut frábærar viðtökur. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og valin bók árins af Morgunblaðinu...ÞÞ í forheimskunarlandi - kilja5. Þegar orð fá vængi
Torfi Jónsson
Yfir átta þúsund tilvitnanir og spakmæli við hvert tilefni...
Þegar orð fá vængi6. Jöklar á Íslandi
Helgi Björnsson
Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga Björnssonar og samstarfsmanna hans við Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum þessa lands og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt. Bókin segir sögu þekkingaröflunar og skilnings á jöklum frá því fyrst var farið að rannsaka þá fram til nútímarannsókna. Rakin eru spor löngu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu undir jöklum Íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra.
Jöklar á Íslandi7. Glerkastalinn - kilja
Jeannette Walls
Bókin geymir áhrifaríkar endurminningar Jeannette Walls sem ólst upp í strjálbýli Bandaríkjanna. Sérvitrir foreldrar festu hvergi rætur, fjölskyldan hraktist á milli staða og börnin máttu þola sára fátækt og vanrækslu. Frásögnin er í senn miskunnarlaus og angurvær ástin til foreldranna skín í gegn þrátt fyrir þær hörmulegu aðstæður sem þau bjuggu börnum sínum...
Glerkastalinn - kilja8. Meiri hamingja
Tal Ben-Shahar
Höfundurinn, TAL BEN-SHAHAR, er vinsælasti fyrirlesarinn við Harvardháskólann. Hann hefur vakið þjóðarathygli í Bandaríkjunum með kenningum sínum og kennslu í jákvæðri sálfræði, enda hafa fjölmiðlar keppst um að gera hugmyndum hans skil. Námskeiðin hans draga að sér 1.400 nemendur á hverri önn, en það...
Meiri hamingja9. 209 Sudoku talnagátur
Gideon Greenspan
Frá útgefendum 109 Sudoku bókanna kemur nú stærsta Sudoku bókin til þessa, með 209 gátum...
209 Sudoku talnagátur10. 109 japanskar Sudoku gátur 6
Nú kemur sjötta bókin af þessum gríðar vinsælu Sudoku bókum. 109 Sudoku eru lang mest seldu Sudoku bækur landsins og hér koma 109 glænýjar gátur...
109 japanskar Sudoku gátur 6