Símanúmer og opnunartími verslana

Eymundsson Austurstræti 18
Verslunin er á fimm hæðum, hefur uppá að bjóða glæsilegt úrval íslenskra og erlendra bóka, tímarita, DVD og tónlistar. Auk þess ritföng, það helsta í ferðamannavöru og gjafavöru hverju sinni. Á þriðju hæð verslunarinnar er Te & Kaffi sem opnaði haustið 2006 og lífgaði strax uppá lífið í miðbænum.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-22.00
Lau: 10.00-22.00
Sun: 10.00-22.00
Sími:
540-2130
Fax:
511-1151
Eymundsson Skólavörðustíg 11
Þessi glæsilega og glænýja verslun opnaði á dögunum í gamla Spron húsinu við Skólavörðustíg. Aðal verslunarinnar eru íslenskar og erlendar bækur, tímarit og gjafavara auk þess sem gott úrval er af tónlist og DVD diskum. Starfsfólkið ætti að vera viðskiptavinum og velunnurum Bókabúðar Máls og menningar að góðu kunnugt en þau koma öll þaðan. Þeim hefur tekist einkar vel upp að heimfæra þann góða anda sem þar ríkti í nýja verslun og munu halda áfram að þjónusta sína góðu viðskiptavini af sinni alkunnu snilli.
Ekki truflar það stemninguna að starfsmenn Te & kaffi munda þar sínar vélar og bjóða uppá ilmandi heita bolla á kaffihúsi sínu í versluninni, te, kakó, súpur og brauð svo eitthvað sé nefnt.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-22.00
Lau: 10.00-22.00
Sun: 10.00-22.00
Sími:
515-2510
Fax:
515-2505
Eymundsson og Penninn Hallarmúla 2
Við Hallarmúla 2 er ein stærsta ritfangaverslun á landinu. Einnig má þar finna mikið og gott úrval af töskum. Á neðri hæðinni má svo finna Eymundsson sem er troðfull af bókum, tímaritum og leikföngum auk þess sem þar er að finna glæsilega deild myndlistar- og föndurvöru.
Opnunartími:
Mán til fös: 08 - 18
Lau. frá kl. 10 - 15
Sími:
540-2060
Fax:
540-2076
Eymundsson Kringlunni suður
Verslunin í syðri enda Kringlunnar hefur reynst framhalds- og háskólanemendum einkar vel sem miðstöð skólabóka. Auk þess prýðir verslunina gott úrval bóka, tímarita og hefur á að skipa þægilegri deild fyrir börnin.
Opnunartími:
Mán-mið: 10.00-18.30
Fim: 10.00-21.00
Fös: 10.00-19.00
Lau: 10.00-18.00
Sun: 13.00-18.00
Sími:
540-2150
Fax:
533-1131
Eymundsson Kringlunni norður
Verslunin í norðurenda Kringlunnar hefur veitt viðskiptavinum sínum snögga og góða þjónustu í helstu vöru ritfanga og gjafavöru frá opnun Kringlunnar. Þar er einnig hægt að fá rjómann af bókum, töskum og tímaritum.
Opnunartími:
Mán-mið: 10.00-18.30
Fim: 10.00-21.00
Fös: 10.00-19.00
Lau: 10.00-18.00
Sun: 13.00-18.00
Sími:
540-2145
Fax:
568-8748
Eymundsson Smáralind
Í þessari stærstu verslunarmiðstöð landsins má finna eina af nýjustu Eymundsson verslununum. Verslunin endurspeglar nútímabókabúð með gott úrval af vinsælustu bókunum, CD og DVD diskum, ritföngum og gjafavöru ekki síst fyrir börnin.
Opnunartími:
Mán-fös 11.00-19.00
Lau: 11.00-18.00
Sun: 13.00-18.00
Sími:
540-2300
Fax:
564-3044
Eymundsson Mjódd Álfabakka 14b
Eymundsson í Mjódd er staðsett í verslunarkjarna þar sem finna má ýmsar sérverslanir auk stórrar matvöruverslunar. Fyrir utan að hafa bækur, tímarit, ritföng og gjafavörur má þarna finna einstakt úrval af ferðatöskum.
Opnunartími:
Afgreiðslutími:
Mán-fös: 10.00 – 18.00
Lau: 10.00 – 16.00 (sumaropnun 10-14 eftir 17.júní)
Sími:
540-2155
Fax:
577-1131
Húsgagnadeild Pennans Hallarmúla 4
Í sýningarsal húsgagna í Hallarmúla 4, getur þú kynnt þér úrvalið af þeim húsgögnum sem Penninn býður upp á. Þar getur þú fengið aðstoð sölumanna við að finna þá lausn sem hentar þér best. Penninn er einnig með sýningarsal á efri hæð við Hafnarstræti 91-93 á Akureyri og þar er að sama skapi hægt að leita aðstoðar sölumanns og kynna sér úrval Pennans á sviði húsgagna og þjónustu sem þeim tengist.
Opnunartími:
Virka daga frá 08 - 17
Sími:
540-2000
Fax:
568-9315
Ferðamannaverslun - Tourist shop Bankastræti 2
Við opnuðum í sumar nýja glæsilega ferðamannaverslun í Bankastræti. Þar er mikið úrval af minjagripum og ferðamannavöru hverskonar.
Opnunartími:
Opið alla daga frá 10-18
Sími:
540-2000
Fax:
Eymundsson Strandgötu 31 Hafnarfirði
Í miðbæ Hafnarfjarðar er Eymundsson staðsett á besta stað. Fyrir utan almennt vöruúrval hefur hún uppá að bjóða mikið af myndlistarvörum.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-18.00
Lau: 10.00-16.00
Sími:
540-2160
Fax:
555-4557
Eymundsson og Penninn Hafnarstræti 91-93 Akureyri
Verslun Eymundsson og Pennans á Akureyri er í göngugötunni nánar tiltekið Hafnarstræti 91-93 og er á tveimur hæðum. Á efri hæð er húsgagnaverslun Pennans auk þess sem opnuð var nýlega glæsileg tónlistar- og DVD deild. Á jarðhæðinni er bókadeild sem er með mikið úrval íslenskra og erlendra bóka, barnabóka, hljóð- og mynddiska, tímarita, gjafavörur og mjög gott úrval af ferðamannavörum. Síðan er ritfangadeild með gott úrval og tölvudeild. Verslunin hefur tekið heilmiklum stakkaskiptum, miklar breytingar orðið á húsnæðinu og með tilkomu skólabókadeildar í kjallara og glæsilegs kaffihúss Te og Kaffi er verslunin orðin eitt af flaggskipum Eymundsson.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-22.00
Lau-sun: 10.00-22.00
Sími:
540-2180
Fax:
461-5051
Eymundsson Dalbraut 1 Akranesi
Penninn Akranesi er rótgróin verslun með mikið vöruval. Þar er boðið upp á mikið af bókum, bæði fyrir börn og fullorðna, auk tímarita. Úrvalið er einnig mikið í ritföngum, allt fyrir fyrirtæki, skóla og heimili. Þar er einnig að finna spil, púsl, leikföng, ýmsa gjafavöru og ferðatöskur. Mikið er til af geisladiskum, myndböndum og DVD fyrir börn, auk landkynningarmynda. Boðið er upp á framköllunarþjónustu í verslun okkar á Akranesi.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-18.00
Lau: 10.00-14.00
Sími:
540-2115
Fax:
431-3124
Penninn Sólvallagötu 2 Keflavík
Eftir að Penninn og Bókabúð Keflavíkur höfðu átt mikið og gott samstarf í fjölda ára keypti Penninn reksturinn 2006. Verslunin hefur tekið fáeinum breytingum síðan þá en við bjóðum gott úrval af ritföngum, bókum, tímaritum og gjafavöru.
Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-18.00
Lau: 10.00-14.00
Lokað á laugardögum í júní og júlí.
Sími:
540-2105
Fax:
Penninn og Eymundsson Hafnarstræti Ísafirði
Penninn á Ísafirði er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki (Bókhlaðan) sem Penninn festi kaup á sumarið 2006. Verslunin hefur verið fastur punktur í miðbæ Ísafjarðar síðan 1920. Þar er í boði úrval íslenskra og erlendra bóka, tímarita og ýmis önnur afþreyingarvara fyrir börn og follorðna. Einnig ritföng, skrifstofutæki og stólar, ljósmyndavörur og ferðamannavörur yfir sumartímann.

Opnunartími:
Mán-fös: 9.00-18.00
Lau: 10.00-16.00
Sími:
456-3123
Fax:
456-4135
Penninn og Eymundsson Bárustíg 2 - Vestmannaeyjum
Við opnuðum nýja verslun Pennans og Eymundsson í Vestmannaeyjum vorið 2010. Við seljum bækur allt árið og leiðbeinum fólki með val á bókum hvort sem er til eigin nota eða gjafa. Barnabókahornið er hið glæsilegasta þar sem mikill metnaður er lagður í að hafa sem mesta úrval ásamt margvíslegri afþreyingu fyrir börnin. Ferðamannahornið er einnig hið glæsilegasta og þar geta ferðamenn valið um minjagripi frá Íslandi, t.d. lundastyttur hverskonar. Verslunin bíður einnig upp á úrval gjafavöru, geisladiska, tímarita ofl.
Opnunartími:
Mán - mið: 9.00-18.00
Fim - fös: 9.00-21.00
Lau: 10.00-18.00
Sun: 13.00-17.00
Sími:
482-3683
Fax:
Penninn-TRS Eyrarvegi 37 Selfossi
Opnunartími:
Mán-fös: 8.00-17.00
Sími:
480-3300
Fax:
Eymundsson Leifsstöð
Opnunartími:
Opnunartími verslunarinnar á Keflavíkurflugvelli rímar við brottfarir véla, og því erfitt að tilgreina eiginlegan afgreiðslutíma.
Sími:
540-2310
Fax:

 

 


Vefverslun

0 hlutir í körfunni

Opnunartímar

Eymundsson & Pennans

Póstlistaskráning

Fáðu nýjustu tilboðin okkar