Hvernig versla ég?

 

Vefverslun Eymundsson

Vefverslun Eymundsson endurspeglar hina klassísku íslensku bókabúð nútímans og rímar úrvalið við aðrar verslanir Eymundsson. Helstu vöruflokkar birtast í flipum lárétt efst á forsíðu, þ.e. Bækur og tímarit, Skiptibókamarkaður, Töskur, Gjafavörur og Ritföng og skólavörur auk þess sem hægt er að fá allar upplýsingar um Bókaklúbba Eymundsson. Þegar smellt er á yfirflokk birtist listi yfir undirflokka vinstramegin á síðunni og þegar smellt er á undirflokk birtast þær vörur sem til eru í viðkomandi flokki. Með því að smella á vöruheiti færðu upp nánari lýsingu vörunnar og verð. Á forsíðunni má ávallt sjá nýustu tilboðin, hvað er það nýasta og hverju starfsfólkið mælir sérstaklega með hverju sinni.

Hvernig versla ég á vefnum?

Vörur eru settar í körfu með því að smella á hnappinn Setja í körfu. Þar getur þú ávallt átt við körfuna, bætt við, fjarlægt úr, tæmt eða verslað meira allt með viðeigandi hnöppum. Til að ganga frá kaupum smellir þú á samnefndan tengil. Þá opnast síða með innihaldi körfunnar og innsláttarformi. Þegar þú hefur gengið úr skugga um að innihald körfunnar sé rétt, þá skráir þú inn upplýsingar um viðtakanda og staðfestir pöntunina. Viðtakandi þarf ekki alltaf að vera sá sami og greiðandi. Þá berst pöntunin til okkar og fer í vinnslu. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband við þig og láta vita hvað það gæti tekið langan tíma að fá vöruna og þú getur í framhaldi af því ákveðið hvort þú viljir halda þig við pöntunina.

Enginn sendingarkostnaður 

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag eftir að þær berast og er öllum pöntunum dreift af Íslandspósti. Afhendingartími frá því vara er keypt og greidd að fullu getur orðið 2-3 virkir dagar. Engum sendingarkostnaði er bætt við á sendingar innanlands en ef sent er til útlanda bætist sendingarkostnaður við og miðað er við gjaldskrá Íslandspósts.

Til baka á forsíðu


Vefverslun

Enginn sendingarkostnaður

0 hlutir í körfunni

Opnunartímar

Eymundsson & Pennans

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir og tilkynningar

11. mars, 2010

Prjónum saman í Eymundsson í Austurstræti

Lærðu silfurfit hjá Ragnheiði Eiríksdóttur höfundi kennsludisksins Prjónum saman í Eymundsson Austurstræti fimmtudaginn 11. mars kl. 20-22.

11. febrúar, 2010

Ástarfaraldur

Fleiri fréttir

Póstlistaskráning

Fáðu nýjustu tilboðin okkar