Metsölulistar
Listarnir eru gerðir út frá sölu dagana 3. - 9. mars 2010 í verslunum Eymundsson.
Barnabækur Handbækur, fræðibækur og ævisögur.
- Aðallisti íslenskra bóka
-
1. Póstkortamorðin - kilja
Liza Marklund & James Patterson
Bandaríski lögreglumaðurinn Jacob Kanon ferðast milli evrópskra stórborga í leit að morðingja dóttur sinnar og unnusta hennar. Þau voru myrt í Róm og síðan hafa ung pör í fleiri borgum hlotið sömu örlög. Áður en voðaverkin eru framin senda morðingjarnir póstkort til blaðamanns á staðnum – og síðar ljósmynd af líkunum...
3. Bankster - kilja
Guðmundur Óskarsson
Sögusviðið er Reykjavík veturinn 2008–2009. Markús, 28 ára bankamaður, fer eftir ráðgjöf vinar síns og heldur dagbók eftir að hafa misst starfið í bankanum. Höfundur hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir Bankster...
4. Horfðu á mig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem vistaður er á réttargeðdeildinni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með skelfilegum afleiðingum. Ungum útvarpsmanni berast torkennileg skilaboð og ógnvekjandi símtöl. Og látin stúlka sækir í að standa við fyrirheit um að...
5. Harmur englanna - kilja
Jón Kalmann Stefánsson
Tíminn er stundum bölvað kvikindi, færir okkur allt til þess eins að taka það burt aftur. Það eru þrjár vikur síðan strákurinn kom í Plássið með stórhættulegan skáldskap á bakinu og vegalengdin milli Bárðar og lífsins eykst miskunnarlaust með hverjum degi...
6. Loftkastalinn sem hrundi - kilja
Stieg Larsson
Lisbeth Salander á harma að hefna - gegn manninum sem reyndi að myrða hana og stofnunum sem tókst næstum að eyðileggja líf hennar. Lisbeth er á gjörgæslu, grunuð um þrjú morð og eitt morðtilræði. Hún þarf ekki aðeins að sýna fram á sakleysi sitt, heldur afhjúpa gjörspillta embættismenn og...
7. Týnda táknið - kilja
Dan Brown
Táknfræðingurinn Robert Langdon er óvænt boðaður til að halda erindi í þinghúsinu í Washington. Örfáum mínútum eftir komu hans finnst þar sérkennilegur hlutur – með fimm táknum...
8. Veröld sem var - kilja
Stefan Zweig
Veröld sem var er einhver áhrifamesta sjálfsævisaga rithöfundar sem út hefur komið. Höfundurinn fléttar lífshlaup sitt saman við umrótatíma í Evrópu á síðustu öld svo úr verður einstakur aldarspegill sem felur í sér mikilvæg varnaðarorð til komandi kynslóða...
9. Stúlkan sem lék sér að eldinum - kilja
Stieg Larsson
Lisbeth Salander er eftirlýst. Tveir Millenium-blaðamenn sem hafa unnið grein um mansal og kynlífsviðskipti eru drepnir og fingraför hennar eru á vopninu. Blöðin grafa upp sögur af ofbeldisfullu framferði hennar og samfélaginu stendur ógn af henni. En hvar er hún?..