Styrktarstefna
Eymundsson hefur verið virkur þátttakandi í íslensku samfélagi í gegnum tíðina og lagt áherslu á uppbyggileg styrktarverkefni. Eymundsson hefur um árabil lagt mörgum málefnaflokkum lið og er umhugað um að styrkja góð málefni á landsvísu. Verkefnin hafa verið fjölbreytt og af margvíslegum toga, t.d. stuðningur til íþróttafélaga, góðgerðamálefna, menningar og lista osfrv. Nú hefur verið ákveðið að afmarka styrkveitingar til einstakra málefnaflokka þetta árið og mun Eymundsson beina styrkveitingum sínum til Stóru upplestrarkeppninar fyrir 7. bekk grunnskóla og Barnaheilla.
Nánar um styrktarverkefni Eymundsson:
Stóra upplestrarkeppnin
Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin hefst á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, ár hvert og lýkur í mars. Kennarar nýta þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fá alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Lagt er upp með að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni. Þetta á ekki síst við um lokahátíð keppninnar. Eymundsson mun veita verðlaun fyrir 1,2 og 3 sæti á lokahátíðum keppninar sem fer fram víða um land. Með því að leggja keppninni lið vill Eymundsson leggja sitt að mörkum við að bæta og stuðla að betra læsi hjá grunnskólabörnum.
Barnaheill
Markmið Barnaheilla er að berjast fyrir réttindum barna og breyta lífi þeirra til batnaðar. Samtökin hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Eymundsson tekur þátt í verkefni á vegum Barnaheilla sem ber heitið ,, Heillakeðja barnanna 2012“. Samtals taka 12 fyrirtæki þátt í heillakeðjunni sem hvert um sig heldur keðjunni gangandi í einn mánuð. Með þátttöku skuldbinda fyrirtækin sig til að láta með einum eða öðrum hætti a.m.k eina milljón króna renna til verkefna Barnaheilla. Barnaheill mun kynna heillakeðjuna á móti með myndarlegum hætti og auk þess fer fram sérstök kynning á hverju fyrirtæki fyrir sig í upphafi og lok hvers mánaðar.
