Verslanir Eymundsson
Eymundsson Austurstræti 18
Eymundsson Austurstræti 18Te og Kaffi á staðnum
Eymundsson Austurstræti er elsta starfandi bókaverslun Reykjavíkur, þar er að finna mikið úrval af íslenskum og erlendum bókum og þar er stærsta tímaritadeild landsins. Einnig fjölbreytt úrval DVD mynda og geisladiska þar sem sérstök áhersla er lögð á gott framboð af íslenskri tónlist. Í kjallara verslunarinnar er að finna skemmtilega barnadeild með bókum, leikföngum og spilum og ritfangadeild sem býður upp á flest það sem fyrirtæki, námsmenn og heimili sækjast eftir. Í versluninni má einnig finna gott úrval af vörum fyrir ferðamenn; bækur, minjagripi, boli, ullarvöru, tónlist og DVD myndir. Einnig úrval ferðakorta og ferðahandbóka um Ísland jafnt sem alla helstu ferðamannastaða erlendis. Á efri hæðum búðarinnar er Te & Kaffi með kaffihús og stóra verönd sem er yfirfull af fólki á sumrin enda skjólgott með eindæmum.
Sími: 540-2130Fax: 511-1151 auafgr@eymundsson.is
Opnunartími
Mán-fös: 09.00 - 22.00
Lau: 10.00 - 22.00
Sun: 10.00 - 22.00
Eymundsson Álfabakka 14b, Mjódd
Eymundsson Álfabakka 14b, Mjódd
Eymundsson í Mjódd er með gott úrval af nýjum bókum, tímaritum, tónlist, myndefni, ritföngum, gjafavöru, leikföngum og spilum, ásamt breiðu úrvali af ferðatöskum. Viðskiptavinum er boðið upp á kaffi eða kakó í afslöppuðu umhverfi, en verslunin er staðsett í verslunarkjarna þar sem finna má ýmsar skemmtilegar sérverslanir.
Sími: 540-2155Fax: 577-1131 MJ.afgr@eymundsson.is
Opnunartími
Mán-fös: 10-18
Lau: 11-16
Sun: Lokað
Opnunartími
Mán – fös: 9-18
Lau: 10 - 14
Sun: Lokað
Eymundsson Faxastíg 36, Vestmannaeyjum
Eymundsson Faxastíg 36, VestmannaeyjumTe og Kaffi á staðnum
Eymundsson í Vestmannaeyjum flutti á Bárustíginn árið 2010, steinsnar frá höfninni þar sem Herjólfur leggst að landi. Þar er að finna ágætt úrval nýrra íslenskra bóka og barnabóka auk vinsælustu geisladiska og DVD mynda hverju sinni. Þar er einnig góð ritfangadeild, tímaritadeild, kaffiveitingar frá Te og kaffi, upplýsingaþjónusta Vestmannaeyjabæjar og söludeild Símans.
Sími: 482-3683 Fax: 482-3684 vestmannaeyjar@eymundsson.is
Opnunartími
Mán -mið: 9-18
Fim-fös: 9-20
Lau: 10-17Sun: 11-17
Eymundsson Hafnarstræti 2, Ísafirði
Eymundsson Hafnarstræti 2, Ísafirði
Einstaklega skemmtileg verslun í gamalgrónu verslunarhúsnæði í miðbæ Ísafjarðar. Þar er að finna ágætt úrval nýrra íslenskra bóka og barnabóka, tónlistar og DVD mynda. Gott úrval af ritföngum og tölvurekstrarvöru, tímaritum, töskum og gjafavöru. Einnig má þar finna góða ferðamannadeild þar sem boðið er upp á bækur, landakort og minjagripi. Auk þess er boðið upp á sérpöntunarþjónustu fyrir sjókort.
Sími: 456-3123 Fax: 456-4135 IS.afgr@eymundsson.is
Opnunartími
Mán - fös: 09-18
Lau: 10-14
Sun: Lokað
Eymundsson Hafnarstræti 91-93, Akureyri
Eymundsson Hafnarstræti 91-93, AkureyriTe og Kaffi á staðnum
Ein allra glæsilegasta bóka- og ritfangaverslun landsins í hjarta Akureyrar. Fjölbreytt úrval íslenskra og erlendra bóka, ritfanga, tölvurekstrarvara og húsgagna. Einnig fjölbreytt ferðamannavara, ullarvörur, bolir, minjagripir og íslenskt handverk . Í versluninni er að finna stærstu DVD- og tónlistardeild Eymundsson verslana á landinu. Þar er einnig skemmtileg barnabókadeild, mikið úrval af töskum, skólatöskum, leikföngum og tímaritum auk kaffihússins margrómaða þar sem boðið er upp á fyrsta flokks kaffiveitingar frá Te & kaffi.
Sími: 540-2180 Fax: 461-5051 akureyri@eymundsson.is
Opnunartími
Mán - fös: 09-22
Lau: 10-22
Sun: 12-22
Eymundsson Keflavík, Sólvallagötu 2
Eymundsson Keflavík, Sólvallagötu 2
Í Eymundsson Keflavík er að finna ágætt úrval nýrra íslenskra bóka og barnabóka auk vinsælustu geisladiska og DVD mynda hverju sinni. Þar er einnig gott úrval ritfanga, tölvurekstrarvara, tímarita, og leikfanga, einnig töskur, skólatöskur, landakort og erlendar vasabrotsbækur.
Sími: 540-2105Fax: 421-5080 keafgr@eymundsson.is
Opnunartími
Mán - fös: 9-18
Lau: 10-14 lokað júní og júlí
Sun: Lokað
Opnunartími 1. maí
LOKAÐ
Eymundsson Kringlunni norður
Eymundsson Kringlunni norður
Eymundsson Kringlunni norður er staðsett á annari hæð verslunarmiðstöðvarinnar, skammt frá Hagkaup. Þar má finna frábært úrval af gjafakortum, gjafapappír og tímaritum. Í versluninni er einnig snotur bókadeild með allt það vinsælasta í íslenskum bókum og barnabókum hverju sinni. Þar má einnig finna helstu ritföng og tölvurekstrarvörur, ferðatöskur, mest seldu erlendu vasabrotsbækurnar, tónlistardiskana og DVD myndirnar. Þægileg verslun sem staðið hefur á sama stað frá opnun Kringlunnar árið 1987.
Sími: 540-2145Fax: netfang verslunar Krpe@eymundsson.is
Opnunartími
Mán-mið: 10-18:30
Fim: 10-21
Fös: 10-19
Lau: 10-18
Sun: 13-18
Fim: 10-21
Fös: 10-19
Lau: 10-18
Sun: 13-18
Eymundsson Kringlunni suður
Eymundsson Kringlunni suður
Eymundsson Kringlunni suður er ein stærsta bókabúð Eymundssonar, staðsett í suðurenda verslunarmiðstöðvarinnar við hlið Bónus. Þar má finna ágætt úrval af íslenskum og erlendum bókum, tímaritum,tónlist, DVD myndum og gjafavöru. Búðin er vin í Kringlunni fyrir þá sem vilja slaka á og njóta þess að grúska í bókum. Barnabókadeildin er eitt best geymda leyndarmál Kringlunnar.
Sími: 540-2320Fax: 533-1131 BK.afgr@eymundsson.is
Opnunartími
Mán-mið: 10-18.30
Fim: 10-21
Fös: 10-19
Lau: 10-18
Sun: 13-18
Eymundsson Leifstöð
Eymundsson Leifstöð
Eymundsson flugstöðvarverslunin býður upp á ágætt úrval af tímaritum, íslenskum og erlendum vasabrotsbókum, landakortum og ferðahandbókum. Þar er einnig boðið upp á barnabækur, þrautabækur, litabækur, leikföng, ferðafylgihluti og litlar ferðatöskur fyrir flugið. Það ætti engum að leiðast langt flug ef ferðin byrjar í Eymundsson.
Sími: 540-2310 Fax: netfang verslunar fl_adal@eymundsson.is
Opnunartími
Opnunartími miðast við brottfarir
Eymundsson Skólavörðustíg 11
Eymundsson Skólavörðustíg 11Te og Kaffi á staðnum
Þessi glæsilega verslun opnaði árið 2009 í gamla Spron húsinu við Skólavörðustíg og er ein stærsta verslun þessarar fjölförnu og vinsælu verslunargötu. Þar er að finna gott úrval íslenskra og erlendra bóka,barnabóka, tímarita og gjafavöru auk íslenskra tónlistar- og DVD diska. Einnig er þar gott úrval af ferðamannavöru; minjagripum, landakortum og landkynningarbókum. Te og kaffi rekur kaffihús búðarinnar sem er einn vinsælasti stefnumótastaður bæjarins enda þægilegt að tylla sér þar niður með rjúkandi kaffi og spenndi bók eða tímarit. Góður andi einkennir þessa verslun, þjónustan er persónuleg og auðvelt að gleyma stað og stund.
Sími: 540-2350Fax: 515-3505 verslun.skolavordustig@eymundsson.is
Opnunartími
Mán-fös: 09.00 - 22.00
Lau: 10.00 - 22.00
Sun: 10.00 - 22.00
Lau: 10.00 - 22.00
Sun: 10.00 - 22.00
Eymundsson Smáralind
Eymundsson Smáralind
Eymundsson opnaði stórverslun í Smáralind árið 2001 og hefur verið á sama stað frá upphafi; vestan megin á neðri hæð verslunarmiðstöðvarinnar. Þar er boðið upp á ágætt úrval íslenskra og erlendra bóka, barnabóka, íslenskrar tónlistar, DVD mynda, landakorta og ferðahandbóka. Þar er einnig góð ritfanga- og rekstrarvörudeild, myndlistarvara, töskur, spil, leikföng og ágætt úrval gjafakorta og gjafaumbúða. Verslunin er rúmgóð og þangað er þægilegt að koma t.d. með barnavagna eða hjólastóla.
Sími: 540-2301Fax: 5643044 eyglob@eymundsson.is
Opnunartími
Mán - mið: 11-19
Fim: 11-21
Fös: 11-19
Lau: 11-18
Sun: 13-18
Eymundsson Strandgötu 31, Hafnarfirði
Eymundsson Strandgötu 31, Hafnarfirði
Eymundsson Hafnarfirði er þægileg verslun með gott vöruúrval bóka, tímarita, DVD, tónlistar, ritfanga og tölvurekstrarvara. Þar má einnig finna góða barnabókadeild, leikföng, ferðatöskur, skólatöskur, myndlistavörur, landakort, minjagripi, spil, gjafavörur og námsbækur
Sími: 540-2160 Fax: 555-4557 Hflager@eymundsson.is
Opnunartími
Mán - fös: 9-18
Lau: 10-16
Sun: Lokað
Opnunartími
Mán - fös : 10-18
Laugardaga : 10-18
Sunnudaga : Lokað
Opnunartími
Mán-mið: 10-18:30
Fim: 10-21
Fös: 10-19
Lau: 10-18
Sun: 13-18
Fim: 10-21
Fös: 10-19
Lau: 10-18
Sun: 13-18
