Ferðatöskur fyrir flugið


Handfarangur:

 Þú mátt taka með þér um borð eina einingu handfarangurs, ekki stærri en 55x35x25cm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg.

Yfirvigt: 

Ef einhver taska er þyngri en sem nemur 20 kg., er innheimt sérstakt yfirvigtargjald fyrir þá tösku. Gjaldið er ein upphæð óháð umframþyngd. Hámarksþyngd á eina tösku getur þó mest verið 32 kg. og áskiljum okkur við rétt til að hafna flutningi á töskum sem eru umfram þá þyngd.

Innritaður farangur: 

Hver farþegi má innrita, sér að kostnaðarlausu, eina tösku með að hámarki 20 kg. af farangri. Athugið að ekki er heimilt að færa farangursheimild á milli bókana. Hægt er að kaupa heimild fyrir auka tösku eða töskur, samkvæmt verðskrá.

 

Félag Gjald¹
Airberlin 2.400 kr.
Air Greenland Innifalið
Delta Innifalið
EasyJet 3.100kr.
German Wings 1.600 kr.
Icelandair Innifalið
Lufthansa Innifalið
Fly Niki 2.400 kr.
Norwegian 1.500 kr.
Primera Air Innifalið
SAS Innifalið
Thomas Cook Innifalið
Transavia 2.400 kr.
Vueling 3.000 kr.
Wow Air 2.900 kr.

  1: Verð fyrir eina tösku (max. 20 kg.), aðra leið, þegar bókað er á netinu. Mun dýrara á flugvellinum. 2: Gjöld erlendu félaganna eru umreiknuð í krónur m.v. gengi dagsins og námunduð að hundraði þar sem gengi krónunnar flöktir mikið.


Vökvi í handfarangri
Vökva má ferðast með í handfarangri að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra (1dl) af vökva.
Allar umbúðirnar verða að rúmast í gegnsæjum eins (1) lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás.
Hverjum farþega er heimilt að hafa með sér einn poka.
Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og annað sem getur innihaldið vökva.
Gosflöskur og dósir eru flestar stærri en 100 ml (1dl) og er því ekki heimilt að hafa þær með sér inn fyrir öryggishlið.
Farþegar mega hafa meðferðis aðrar nauðsynjar til persónulegra nota meðan á flugi stendur ef öryggisverðir telja að stafi engin ógn af
þessum hlutum:

Lyfseðilsskyld lyf merkt notanda a) í töfluformi eins mikið og þarf b) 100 ml. í fljótandi formi.
Barnamat
Matvæli vegna sérstaks mataræðis

Smá kennsla hvernig á að pakka fyrir ferðalagið...



57 vörur fundustKápurListi
Raða eftir:
57 vörur fundustKápurListi
Leita í öllu
  • Leita í öllu
  • Bækur
  • Rafbækur
  • Tímarit
  • CD & DVD
  • Leikföng
  • Ritföng ofl.
  • FerdavÖrur
  • Visitors
ÓskalistiKarfa0 vörur í körfu 0 kr.
Opnunartími verslana