Djöflastjarnan-kilja
Á þrúgandi heitum sumardegi í Osló finnst ung kona myrt í íbúð sinni. Einn fingur hennar hefur verið skorinn af og undir öðru augnloki hennar finnst agnarsmár rauður demantur, skorinn í fimm arma stjörnu. Harry Hole er falin rannsókn málsins ásamt Tom Waaler – vinnufélaga sem hann hefur sterklega grunaðan um vopnasmygl og morð. Fimm dögum síðar er tilkynnt um hvarf konu. Þegar afskorinn fingur hennar finnst, og á honum hringur með stjörnulaga demanti, lítur út fyrir að Oslóarlögreglan eigi í fyrsta sinn í höggi við raðmorðingja. Á sama tíma er Harry staðráðinn í að sýna fram á sekt Waalers. Í ákafri leit sinni að lausn þessara tveggja mála stendur hann frammi fyrir erfiðum ákvörðunum – m.a. um framtíð sína hjá lögreglunni.
DJÖFLASTJARNAN er þriðja bók JO NESBØ sem kemur út á íslensku. .
Halda áfram að verslaNánar um vöruna
Form:Kilja
Útgáfuár:2011
Útgefandi:UE
Blaðsíðufjöldi:480
Vöruflokkur:Skáldverk íslensk - kiljur
Vörunúmer:UE 1104
- Afhendingarmáti
- Skilafrestur
- Þarftu aðstoð 540 2000


Smelltu hér til að skrifa umsögn