Hildur Guðna-Leyfðu Ljósinu
Leyfðu ljósinu er tónverk sem tekið var upp í Music Research Centre við Háskólann í York síðastliðin janúar af Tony Myatt. Ekkert var átt við upptökurnar eftir flutninginn. Það er hið virta útgáfufélag Touch sem gefur verkið út. Hildur Guðnadóttir er sellóleikari og tónskáld og er búsett í Berlín. Undanfarin ár hefur hún unnið með allskyns tónskáldum og listamönnum og verið meðlimur í fjölmörgum hljómsveitum. Meðal þeirra eru múm, Stórsveit Nix Nolte, Skúli Sverrisson, Jóhann Jóhannsson, Valgeir Sigurðsson, Stilluppsteypa, BJ Nilsen og svo framvegis.
Halda áfram að verslaNánar um vöruna
Form:CD
Útgáfuár:2012
Vöruflokkur:Tónlist popp/rokk íslenskt
Vörunúmer:KNGTO90
- Afhendingarmáti
- Skilafrestur
- Þarftu aðstoð 540 2000


Smelltu hér til að skrifa umsögn