Hugvit
Hugmyndir hönnuðarins Einars Þorsteins Ásgeirssonar byggja á þeirri sannfæringu hans að hugvit geti byggt betri heim sé því rétt beitt. Verk hans endurspegla mikla þekkingu og einstaka sýn á lögmál náttúrunnar og hvernig beita megi þessum lögmálum í arkitektúr, hönnun og myndlist. Í bókinni Hugvit eru hugmyndum Einars Þorsteins gerð skil í máli og myndum. Í vandaðri grein Péturs H. Ármannssonar og viðtali Guðmundar Odds Magnússonar við Einar kynnist lesandinn einstökum hugsuði sem markað hefur spor í íslenska hönnunarsögu og verið þátttakandi í alþjóðlegum straumum og stefnum. Bókin endurspeglar mikla þekkingu og einstaka sýn á lögmál náttúrunnar og hvernig beita megi þessum lögmálum í arkitektúr, hönnun og myndlist. Athygli er beint að stórmerkum uppgötvunum Einars á sviði rúmfræði, meðal annars gullinfangi, sem er flötungur byggður á fimmfaldri samhverfu og prýðir tónlistarhúsið Hörpu.
Halda áfram að verslaNánar um vöruna
Form:Innbundin
Vöruflokkur:Listaverkabækur
Vörunúmer:HAFHUGVIT
- Afhendingarmáti
- Skilafrestur
- Þarftu aðstoð 540 2000


Smelltu hér til að skrifa umsögn