Ferðahandbók fjölskyldunnar
Það er gaman að fara í ferðalög og þau styrkja fjölskylduböndin. Þau eru líka fræðandi og efla virðingu, vitund og tilfinningu fólks fyrir landinu, umhverfinu og mannlífinu. Höfundar Ferðahandbókar fjölskyldunnar hafa samanlagt unnið áratugi við ferðaþjónustu á Íslandi, meðal annars við að skipuleggja ferðir um landið fyrir útlendinga. Sú reynsla nýttist þeim vel við vinnslu bókarinnar, ekki síður en að ferðast með fjölskyldu sína. Þau lögðu land undir fót með það í huga að velja áhugaverða og fjölskylduvæna staði þar sem börn gætu unað sér í guðsgrænni náttúrunni og ákváðu jafnframt að það mætti ekki kosta neitt að upplifa þessa staði. Markmið þeirra er að fá fólk til að skoða, upplifa og njóta – og slaka á.
Halda áfram að verslaNánar um vöruna
Útgáfuár:2007
Vöruflokkur:Ferðahandbækur, Ferðahandbækur
Vörunúmer:DM 10805
- Afhendingarmáti
- Skilafrestur
- Þarftu aðstoð 540 2000


Smelltu hér til að skrifa umsögn