Emil/Lotta og Lína

Mynd af Emil/Lotta og Lína
Höfundur: Lindgren, Astrid
Astrid Lindgren er löngu heimsfræg fyrir bækurnar sínar. Þær eru geislandi af gleði og kátínu og henni er einkar lagið að setja sig inn í hugarheim barna og sjá þeirra hlið á málunum.Á tveggja diska hljóðbók er nú hægt að fá þrjár af sögum hennar lesnar af þeim Vilborgu Dagbjartsdóttur og Jóni I.Hákonarsyni Emil í Kattholti Emil heitir strákur sem á heima í Smálöndunum í Svíþjóð. Hann er sérstaklega iðinn við að gera alls konar prakkarastrik, en þau gerir hann auðvitað óvart. Mamma hans skráir skammarstrikin í bláar stílabækur sem á endanum fylla heila kommóðuskúffu. Víst kann Lotta að hjóla„Ég kann víst að hjóla!“ æpti Lotta. „Þegar enginn sér mig get ég það sko alveg!“ Í þessari sögu fáum við að heyra um ærslabelginn Lottu og vini hennar Jónas og Míu Maríu.Þekkir þú Línu langsokk? Lína er stelpan sem getur lyft heilum hesti og á kistu fulla af gullpeningum. Tommi og Anna eru yfir sig hissa yfir nýja nágrannanum, henni Línu, en brátt eru þau þrjú orðin bestu vinir.
Halda áfram að versla

Verð: 1.899 kr.

Nánar um vöruna

Form:Hljóðbók
Útgáfuár:2005
Útgefandi:HLJ
Blaðsíðufjöldi:132
Vöruflokkur:Hljóðbækur fyrir börn
Vörunúmer:HLJH108
ISBN:9979784075

Smelltu hér til að skrifa umsögn

Skrifaðu umsögn

Leita í öllu
  • Leita í öllu
  • Bækur
  • Rafbækur
  • Tímarit
  • CD & DVD
  • Leikföng
  • Ritföng ofl.
  • FerdavÖrur
  • Visitors
ÓskalistiKarfa0 vörur í körfu 0 kr.
Opnunartími verslana