Stóra Orðabókin

Mynd af Stóra Orðabókin
Mynd 2 af 2
Höfundur: Jón Hilmar Jónsson
Meðal helstu hlutverka orðabóka er að vera notendum til leiðsagnar um orðaval í ræðu og riti og efnisskipan Stóru orðabókarinnar tryggir fjölþættari og virkari aðgang að slíku efni en í sambærilegum verkum. Hún sameinar í einu verki alhliða lýsingu á íslenskri málnotkun, þar sem orðin birtast í margs konar notkunarsamhengi, svo sem í orðasamböndum af ólíku tagi og samsetningum. Bókin skiptist í tvo meginhluta, annars vegar er sjálf orðabókarlýsingin með rösklega 13.000 flettiorðum, en hins vegar er sjálfstæð skrá um öll orðasambönd í orðabókartextanum, um 85.000 talsins. Aftast í bókinni er svo að finna lykilorðaskrár með enskum, dönskum og þýskum samsvörunum íslensku hugtakaheitanna sem greiða erlendum notendum leið að efni bókarinnar. Bókinni fylgir rafræn útgáfa á geisladiski sem býður upp á margvíslega leitarmöguleika sem ekki eru fyrir hendi í prentaðri orðabók.
Halda áfram að versla

Tilboð: 13.683 kr.

Verð: 17.999 kr.

Nánar um vöruna

Útgáfuár:2005
Útgefandi:JPV
Blaðsíðufjöldi:1650
Vöruflokkur:Bækur, Orðabækur, Útskrift, Bækur
Vörunúmer:JPV791268
ISBN:9979791268

Smelltu hér til að skrifa umsögn

Skrifaðu umsögn

Leita í öllu
  • Leita í öllu
  • Bækur
  • Rafbækur
  • Tímarit
  • CD & DVD
  • Leikföng
  • Ritföng ofl.
  • FerdavÖrur
  • Visitors
ÓskalistiKarfa0 vörur í körfu 0 kr.
Opnunartími verslana