Snjóblinda - Rafbók

Mynd af Snjóblinda - Rafbók
EPUB
Á Siglufirði finnst ung kona blóðug og hálfnakin í snjónum, nær dauða en lífi. Aldraður rithöfundur deyr á grunsamlegan hátt á æfingu hjá áhugaleikfélagi bæjarins, daginn fyrir frumsýningu. Ari Þór Arason, nýútskrifaður lögreglumaður, reynir að komast að því hvað er satt og hvað er logið í samfélagi þar sem engum virðist hægt að treysta. Einangrunin, myrkrið og snjórinn þrengja að honum, óttinn nær tökum á bæjarbúum og gleymdir glæpir fortíðar koma upp á yfirborðið. Ragnar Jónasson er ungur lögfræðingur sem vakti verðskuldaða athygli fyrir spennusögu sína Fölsk nóta. Hér sýnir hann og sannar að hann kann að setja saman sögu sem heldur lesandanum í spennu og óvissu fram á síðustu blaðsíðu. „Skemmtileg og vel skrifuð. Bíð spennt eftir næstu bók.“ – Ásdís Halla Bragadóttir „Spennandi, grípandi og heldur manni við efnið.“ – Guðríður Haraldsdóttir, Vikunni „Flétta Ragnars er prýðilega byggð og lesandanum er komið á óvart í sögulok.“ – Páll Balvin Baldvinsson, Fréttatímanum **** – Heiðrún Sveinsdóttir, bóksali Eymundsson, Austurstræti "Sjóblinda er lipurlega skrifuð og flétta sakamálasögunnar gengur fyllilega upp. ... Ragnar Jónasson er höfundur sem vert er að fylgjast með." Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, bokmenntir.is
Halda áfram að versla

Verð: 2.299 kr.

Nánar um vöruna

Form:EPub
Vöruflokkur:Nýjar rafbækur
Vörunúmer:ISEf9c317ea-8815-4743-85f5-c65e2ffde417

Smelltu hér til að skrifa umsögn

Skrifaðu umsögn

Leita í öllu
  • Leita í öllu
  • Bækur
  • Rafbækur
  • Tímarit
  • CD & DVD
  • Leikföng
  • Ritföng ofl.
  • FerdavÖrur
  • Visitors
ÓskalistiKarfa0 vörur í körfu 0 kr.
Opnunartími verslana