Eldgos 1913-2011 - ný
Vandfundið er myndefni sem er jafn ægifagurt og það litaspil þegar jörð rifnar og jarðeldar leysast úr læðingi. Í þessari glæsilegu bók er að finna ljósmyndir af öllum þeim eldgosum 20. aldar og fyrstu gosum þeirrar 21. sem íslenskir ljósmyndarar hafa gert skil. Bókin lýsir stórkostlegu sjónarspili eldsumbrota á einstæðan hátt Verkinu er skipt í átta aðalkafla sem hver er helgaður einni gosstöð: Kröflu, Öskju, Grímsvötnum, Heklu, Kötlu, Eyjafjallajökli, Surtsey og Heimaey. Líflegir myndatextar Ara Trausta Guðmundssonar setja myndirnar í samhengi við eldvirkni og eldstöðvar en hann semur einnig inngang að hverjum kafla og fróðlegt yfirlit um sögu og eðli eldsumbrota og landmótunar á Íslandi.
Halda áfram að verslaNánar um vöruna
Form:Innbundin
Útgáfuár:2011
Blaðsíðufjöldi:336
Vöruflokkur:Náttúra og dýralíf, Bækur
Vörunúmer:JPV221463
- Afhendingarmáti
- Skilafrestur
- Þarftu aðstoð 540 2000


Smelltu hér til að skrifa umsögn