Harmur englanna - Rafbók

Mynd af Harmur englanna - Rafbók
EPUB
Tíminn er stundum bölvað kvikindi, færir okkur allt til þess eins að taka það burt aftur. Það eru þrjár vikur síðan strákurinn kom í Plássið með stórhættulegan skáldskap á bakinu og vegalengdin milli Bárðar og lífsins eykst miskunnarlaust með hverjum degi. Jens landpóstur er kominn í Plássið, rétt slapp undan norðanvindinum þótt komið væri vor. Saman fara þeir strákurinn yfir að Vetrarströndinni, það eru apríllok og snjókoman tengir saman himin og jörð, þurrkar út áttirnar og landslagið. Hafi djöfullinn skapað eitthvað í þessum heimi, fyrir utan peningana, þá er það skafrenningur uppi á fjöllum. Harmur englanna er sjálfstætt framhald Himnaríkis og helvítis sem út kom árið 2007. "Þessi saga er áfangi, frábærlega skrifuð, ekki gallalaus í þaulhugsun sinni, en áhrifamikil og spennandi lesning um hlut fólks sem gekk þessar götur á undan okkur með minna í malnum en við. Okkar fólk." - Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið 17. okt "Snilldarverk. Ég ætla bara að segja einsog er." Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan 22. október "Það lætur klisjukennt í eyrum þegar sagt er að meginþemu sögunnar séu ástin og dauðinn, en úrvinnsla þessara eilífðarmála lífsins er engan veginn klisjukennd, heldur upprífandi ... ég get sagt án nokkurrar íróníu, að maður skynjar þau upp á nýtt við lesturinn." "Frásagnartækni Jóns Kalmans nær hér hæstu hæðum ... frásögnin hrífur í sjálfri sér, og grípur lesandann með." Gauti Kristmannsson, Víðsjá * * * * * (fimm stjörnur, fullt hús) "Himneskt" Steinunn Inga Óttarsdóttir, Morgunblaðið Harmur englanna er sjálfstætt framhald Himnaríkis og helvítis sem út kom árið 2007 "Stórkostleg samblanda af sögulegum fróðleik og listilegum skáldskap." Ingi Björn Guðnason, bokmenntir.is um Himnaríki og helvíti Jón Kalman Stefánsson hefur þrisvar verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin.
Halda áfram að versla

Verð: 2.599 kr.

Nánar um vöruna

Form:EPub
Útgefandi:6e9c91f5-b4bf-4a51-a276-efbaef701182
Vöruflokkur:Nýjar rafbækur
Vörunúmer:ISEe8590cc8-0f4b-454d-a6f0-0986d437f1eb

Smelltu hér til að skrifa umsögn

Skrifaðu umsögn

Leita í öllu
  • Leita í öllu
  • Bækur
  • Rafbækur
  • Tímarit
  • CD & DVD
  • Leikföng
  • Ritföng ofl.
  • FerdavÖrur
  • Visitors
ÓskalistiKarfa0 vörur í körfu 0 kr.
Opnunartími verslana