Kaffihús
Eymundsson í samvinnu við Te og Kaffi hafa opnað nýtt kaffihús í hinni rótgrónu verslun Eymundsson Austurstræti. Heil hæð hefur bæst við verslunina en í kaffihúsinu er boðið upp á kaffidrykki, sælkerasamlokur, kökur og fleira. Viðskiptavinir kaffihússins, sem rekið er af Te & kaffi, geta einnig skoðað bækur og gluggað í tímaritin sem fást í versluninni, segir í tilkynningu.
Ráðgert er að Eymundsson og Te og Kaffi muni opna fleiri "bókakaffihús" þegar fram líða stundir en þegar hafa Eymundsson og Te og Kaffi opnað lítil útibú sín í versluninni Saltfélaginu Grandagarði. Myndirnar hér að neðan eru teknar úr Eymundsson í Austurstræti 18.