Bókaklúbbar

- við sendum allar bestu bækurnar heim til þín!
Skráðu þig í Bókaklúbba Eymundsson og fáðu sendar frábærar bækur annan hvern mánuð valdar af sérfræðingum innan raða starfsfólks Eymundsson verslananna. Þú velur á milli þess að fá spennubækur, eftirlætisbækur, Ísfólkið eða krakkasögur og við sjáum um að senda til þín það ferskasta og besta hverju sinni. Þar sem að Eymundsson er ekki útgefandi þá getum við valið úr því besta frá öllum útgefendum landsins. Bókaklúbbar Eymundsson bjóða bækurnar á, að lágmarki 20% lægra verði en almennt þekkist í bókaverslunum hérlendis. Kynntu þér hvern klúbb fyrir sig hér að neðan.
Verið velkomin!

Annan hvern mánuð opnast bréfalúgan heima hjá þér og inn koma bestu morðingjarnir og mestu illmennin. Þú færð eina til tvær bækur í hvert skipti, splunkunýja spennusögu og svo læðast með eldri gullmolar sem Eymundsson velur sérstaklega hverju sinni. Verðið á hverri bók fer ekki yfir 2490 krónur
Skrá mig í klúbb

Eftirlætisklúbburinn tryggir þér bestu skáldsögurnar eða bara bestu bækurnar sem starfsfólk Eymundsson finnur hverju sinni. Annan hvern mánuð færðu eina til tvær bækur sendar, hina klassísku metsölubók, nýja bókmenntaperlu eða eina af hinum eldri perlum sem rataði ekki til allra á sínum tíma. Verðið á hverri bók fer ekki yfir 2490 krónur.
Skrá mig í klúbb

Ísfólkið 38 í skugga stíðsins
Nasistar hertaka Noreg og systkinin Jónatan og Karína af Ísfólkinu starfa fyrir andspyrnuhreyfi nguna. Atburðir úr bernsku Karínu kvelja hana svo hún er nánast mannfælin og Jónatan lendir í fangabúðum í
Þýskalandi. Í kapphlaupi við tímann heldur leitin að Þengli illa áfram, meðan hann safnar kröftum til að jafna endanlega um afkomendur sína.
Skrá mig í klúbb

Barnaklúbbar Eymundsson eru þrír og er skipt niður eftir aldri. Bækurnar sem valdar eru í klúbbana eiga það sameiginlegt að vera vandaðar bækur sem henta vel hverjum aldri en eru fyrst og fremst skemmtilegar. Við sendum þér bestu bækurnar og þær nýjustu ásamt gömlum kunningjum.

Eymundsson og Félag viðskipta- og hagfræðinga kynna nýjan bókaklúbb. Fjórum sinnum á ári færðu senda bók tengda viðskiptum og stjórnun sem sérstök valnefnd hefur talið eiga erindi við þig. Miðað er við að bækurnar séu að lágmarki 20% ódýrari en í verslunum.
Skrá mig í klúbb

Sandemoserían inniheldur fjölbreyttar frásagnir, sumar byggðar á hennar eigin lífsreynslu. Ljúfsárar sögur, spennandi glæpareyfarar og að sjálfsögðu hennar aðalsmerki; kynngimögnuð ævintýri með sögulegu ívafi. Í fyrsta skipti verða helstu sögur hennar, aðrar en bókaflokkarnir, nú gefnar út á Íslandi...
Skrá mig í klúbb
Bókaklúbbar Eymundsson
Álfheimar 74 104 Reykjavík
Nína Kristbjörg Hjaltadóttir