Ítarlegar upplýsingar um rafbækur
Spurt og svarað um rafbækur og raflesara
Hvað er rafbók?
Rafbók er bók í rafrænu formi og lesin er af skjá tækja. Hægt er að notast við tölvur, spjaldtölvur, síma og sérstaka raflesara. (Nánari upplýsingar um tæki ). Rafbækur eru með sérstaka öryggislæsingu sem kemur í veg fyrir að hægt sé að deila bókinni takmarkalaust eða prenta út. Rafbækur hjá Eymundsson eru á svokölluðu ePub formi, sem er alþjóðlegur staðall fyrir rafbækur. ePub leyfir mikinn sveigjanleika í textanum og gerir til að mynda mögulegt að stækka og minnka letur á skjá lestrartækisins að vild.
Athugið að rafbækur okkar eru ekki gerðar fyrir Kindle.
Hverjir eru helstu kostirnir við rafbækur?
Rafbókin er umhverfisvæn og tekur ekkert pláss. Á einum rafbókalesara er hægt eð geyma þúsundir bóka. Upplýsingar í rafbókum eru ávallt nýuppfærðar og úreldast þær því síður. Möguleikarnir eru óendanlegir í notkun á þessu formi því hægt er að vinna með textann á gagnvirkan hátt um leið og verið er að lesa. Auðvelt er að fletta upp orðum og hugtökum, skrifa athugasemdir, yfirstrika valda kafla og leita innan textans að tilteknum orðum svo fátt eitt sé nefnt. Þá er auðvelt að stækka letur eftir þörfum.
Hvað er raflesari og hver er munurinn á raflesara og spjaldtölvu?
Í raun eru tvær tegundir af tækjum til að lesa bækur, önnur er spjaldtölva eins og iPad eða Samsung Galaxy Tab eða raflesari eins og Sony eReader og Kindle. Að auki er hægt að lesa rafbækur á tölvum, í snjallsímum og á svokölluðum iPodum.
Meginmunur á spjaldtölvum og raflesurum er að spjaldtölvur eru með baklýstum litaskjá og eru hannaðar til þess að gera ýmislegt fleira en að lesa bækur. Raflesarar er með svokölluðum e-Ink skjá sem ekki er baklýstur, viðkomandi tæki eyðir sáralitlu rafmagni og endist mun lengur til lestrar. Raflesari er sérhannað sem lestrartæki og hentar þeim aðilum sem lesa mikið. Ekki glampar á skjáinn og því hægt að lesa á hann utandyra, einnig er því haldið fram að augun þreytist minna við lestur bóka í raflesurum en baklýstum skjáum því þeir eru í raun eins og að lesa af blaðsíðu í bók.
Eymundsson selur Sony PRS-T1 raflesara. Nánari upplýsingar hér.
Hvernig kaupi ég rafbók?
Í vefverslun Eymundsson, www.eymundsson.is, er að finna allar nýjustu rafbækurnar, íslenskar sem erlendar. Í boði eru rúmlega hundrað þúsund titlar sem einfalt er að kaupa. Flestir þessara titla eru enn sem komið er á ensku en rafbókavæðing íslenskra bóka er nú loks komin í gang og er gert ráð fyrir að mikill uppgangur verði í íslenskri rafbókaútgáfu á árinu 2012.
Þú velur þér rafbók á vef Eymundsson og greiðir fyrir með greiðslukorti í gegnum öruggar færslusíður. Athugið að vildarklúbbsfélagar fá 5% afslátt af öllum vörum Eymundsson. Einungis er hægt að kaupa eina erlenda rafbók í einu en eins margar íslenskar og þú vilt.
Þegar gengið hefur verið frá kaupunum færðu sendar upplýsingar um rafbókina þína og niðurhalshlekk í tölvupósti. Þegar þú smellir á hlekkinn opnast rafbókin í bókasafninu þínu og þú getur byrjað strax að lesa.
Að kaupa rafbók í fyrsta skipti
Áður en þú kaupir rafbók í fyrsta skipti þarftu að hlaða niður ókeypis lestrarforriti fyrir tækið sem þú lest bækurnar í. Nánari upplýsingar um ókeypis lestrarforrit finnurðu hér að neðan. Athugið að einungis er hægt að smella á niðurhalshlekkinn í fimm tækjum, síðan læsist hann. Hins vegar er hægt að lesa bókina í samtals sex tölvum og sex spjaldtölvum eða raflesurum í gegnum ókeypis Adobe ID auðkenni sem þú stofnar í fyrsta sinn sem þú kaupir rafbók. Nánari upplýsingar um Adobe ID auðkenni eru hér að neðan.
Hvaða tæki get ég notað til að lesa rafbók?
Hægt er að nota flestar gerðir tækja en til þess þarf sérstök lestrarforrit sem gera þér kleift að lesa rafbókina þína í tækinu þínu. Forritin eru ókeypis og lítið mál að ná í þau. Einnig þarftu að ná þér í Adobe ID auðkenni sem er hluti af öryggislæsingarkerfi rafbóka.
Þú velur lestrarforrit eftir því hvaða tæki og stýrikerfi þú ert með. Þú býrð til þitt eigið rafbókasafn með því að stofna Adobe ID aðgang sem gerir þér kleift að setja upp rafbókasafnið þitt í tilteknum fjölda tækja sem tengd eru við þinn aðgang. Nánari upplýsingar um Adobe ID aðgang hér að neðan.
Lestrarforrit sem við mælum með:
Apple/MacOsX og PC tölvur/Windows – Adobe Digital Editions – Sækja forritið
iPhone/iPad – Bluefire Reader – Forritið sótt í iStore. Nánari upplýsingar um uppsetningu hér
Android símar og spjaldtölvur – Bluefire Reader – Forritið sótt í Android Market. Nánari upplýsingar um uppsetningu hér.
Adobe ID aðgangur – leiðbeiningar
Adobe ID er notendaauðkenni sem er hluti af öryggislæsingu rafbóka. Adobe ID aukennið tengir tæki við notendur og veitir þeim þannig aðgang að bókasafni sínu í fleiru en einu tæki. Þegar þú opnar í fyrsta sinn niðurhalshlekk af bók í tækinu þínu biður lestrarforritið þig um að skrá Adobe ID auðkennið þitt. Smelltu hér til að ná í Adobe ID
Þarftu aðstoð?
Ef þú þarft aðstoð við kaup á rafbók eða uppsetningu á forritum hafðu samband í síma 540 2000. Þú getur einnig sent póst á eymundsson@eymundsson.is og við svörum eins fljótt og við getum.
