Leiðbeiningar um rafbækur
Hvernig kaupi ég rafbók?
Þú velur þér rafbók á vef Eymundsson og greiðir fyrir með greiðslukorti í gegnum öruggar færslusíður. Einungis er hægt að kaupa eina erlenda rafbók í einu en eins margar íslenskar og þú vilt.
Þegar gengið hefur verið frá kaupunum færðu sendar upplýsingar um rafbókina þína og niðurhalshlekk í tölvupósti. Þegar þú smellir á hlekkinn opnast rafbókin í bókasafninu þínu og þú getur byrjað strax að lesa. Í fyrsta sinn sem þú kaupir rafbók þarftu að hlaða niður ókeypis lestrarforriti og skrá Adobe ID auðkenni sem hvort tveggja er mjög lítið mál.
Athugið að rafbækur okkar eru ekki gerðar fyrir Kindle.
Að kaupa rafbók í fyrsta skipti
Áður en þú kaupir rafbók í fyrsta skipti þarftu að hlaða niður ókeypis lestrarforriti fyrir tækið sem þú lest bækurnar í. Hægt er að nota flestar gerðir tækja en til þess þarf sérstök lestrarforrit sem gera þér kleift að lesa rafbókina þína í tækinu þínu. Forritin eru ókeypis og lítið mál að ná í þau. Einnig þarftu að ná þér í Adobe ID auðkenni sem er hluti af öryggislæsingarkerfi rafbóka.
Þú velur lestrarforrit eftir því hvaða tæki og stýrikerfi þú ert með:
Apple/iOS og PC tölvur/Windows – Adobe Digital Editions – Sækja forritið.
iPhone/iPad – Bluefire Reader – Forritið sótt í iStore. Nánari upplýsingar um uppsetningu hér.
Android símar og spjaldtölvur – Bluefire Reader – Forritið sótt í Android Market. Nánari upplýsingar um uppsetningu hér.
Adobe ID aðgangur – leiðbeiningar
Adobe ID er notendaauðkenni sem er hluti af öryggislæsingu rafbóka. Adobe ID aukennið tengir tæki við notendur og veitir þeim þannig aðgang að bókasafni sínu í fleiru en einu tæki. Þegar þú opnar í fyrsta sinn niðurhalshlekk af bók í tækinu þínu biður lestrarforritið þig um að skrá Adobe ID auðkennið þitt.
Þarftu aðstoð?
Ef þú þarft aðstoð við kaup á rafbók eða uppsetningu á forritum hafðu samband í síma 540-2000. Þú getur einnig sent póst á eymundsson@eymundsson.is og við svörum eins fljótt og við getum.
Ítarlegri upplýsingar um rafbækur og raflesara má nálgast hér.
Rafbók sem gjöf?
• Einfaldasta og þægilegasta leiðin til að gefa rafbók að gjöf er að kaupa gjafakort í næstu Eymundsson verslun. Viðtakandi gjafakortsins getur svo verslað rafbók að eigin valin á eymundsson.is• Önnur gjafaleið; verslaðu sjálf/ur rafbókina sem á að gefa, á eymundsson.is. Áframsendu niðurhalshlekkinn, á þann sem á að gleðja, með tölvupósti. Athugið að niðurhalshlekkurinn eru aðeins virkur í skamman tíma.
• Þriðja leiðin verslaðu sjálf/ur rafbókina sem á að gefa, á eymundsson.is. Virkjaðu sjálfur niðurhalshlekkinn og vistaðu bókina á tölvuna. Sendu svo skjalið í tölvupósti eða færðu viðkomandi bókina á minnislykli. Athugið að til þess að þessi aðferði virki skaltu einungis sækja skjalið -ALLS EKKI OPNA!
